laugardagur, 27. september 2008

fullorðinns

Ég þarf að fara að baka skúffuköku, svona ef ske kynni að allt færi í vaskinn.. þá hef ég nefninlega tíma til að baka aðra.
Ég þarf alltaf að taka mjöög góðann tíma í svona hluti, því ég fékk ekki þann hæfileika að geta bakað. Nema vandræði bara. Pannt fá svoleiðis í afmælisgjöf :) ekki vandræðin samt... hehe

laugardagur, 13. september 2008

svo fann ég fimmhundruðkall

á fimmtudaginn vorum við mamma og Sirry á leiðinni heim á bílnum hans Sindra.
Sem er kannski ekki frásögum færandi nema hvað...
Þegar við vorum komnar að húsinu hans Inga púngs mættum við Sindra á súkkunni og mamma sá að hann benti eitthvað og snýr við á punktinum, því jú hann gaf henni merki um að elta sig.
Við keyrðum til baka á eftir Sindra og sáum hann keyra framhjá skólanum og beygja svo inn á leikvöllinn hjá sundlauginni. Þegar þangað var komið var þetta bara ekki súkkan hans pabba ég veit bara ekkert hverjir þetta voru... aallavega við fengum náttúrulega kast og konan var í vandræðum með að keyra en það habbðist á endanum. Þá datt okkur í hug að kannski hefði drengurinn farið í kaupfélagið... jújú hann var þar svoleiðis að mamma fór inn til að athuga hvað hann hefði viljað. Þá starði Sindri bara á mömmu og sagði "en ég var bara að veifa ykkur


góð saga eeða hvaað??

sunnudagur, 7. september 2008

leiiiiðinleeegt

Ég og Margrét misstum af nektarhlaupinu, ég veit samt ekki hvort Einar köggull fylgdist með, en ég býst fastlega við því.
Þessi helgi er bara að komast í að verða sú allra leiðinlegasta á þessu ári. Ég er strax farin að finna fyrir því að Arna og Auður eru farnar. Leiiiðinlegt.
Annars er nú bara ekkert markvert búið að ske hér, fór að týna hrútaber með mömmu og ömmu og afa... gg13, þetta sýnir og sannar sorg mína... mér finnst ekki neitt spennandi eða skemmtilegt við það að fara og týna ber!
æj ég veit ekki hvað ég get sagt meira.. fynnst ég samt eiga hrós skilið fyrir að nenna að skrifa svona mikið :)

föstudagur, 5. september 2008

Nýja nýja

Ég hef ákveðið að koma mér upp nýju bloggi...
vona að ég hafi það í mér að halda þessu til haga
mun reyna eftir mesta megni
góðar stundir

gullpull