laugardagur, 13. september 2008

svo fann ég fimmhundruðkall

á fimmtudaginn vorum við mamma og Sirry á leiðinni heim á bílnum hans Sindra.
Sem er kannski ekki frásögum færandi nema hvað...
Þegar við vorum komnar að húsinu hans Inga púngs mættum við Sindra á súkkunni og mamma sá að hann benti eitthvað og snýr við á punktinum, því jú hann gaf henni merki um að elta sig.
Við keyrðum til baka á eftir Sindra og sáum hann keyra framhjá skólanum og beygja svo inn á leikvöllinn hjá sundlauginni. Þegar þangað var komið var þetta bara ekki súkkan hans pabba ég veit bara ekkert hverjir þetta voru... aallavega við fengum náttúrulega kast og konan var í vandræðum með að keyra en það habbðist á endanum. Þá datt okkur í hug að kannski hefði drengurinn farið í kaupfélagið... jújú hann var þar svoleiðis að mamma fór inn til að athuga hvað hann hefði viljað. Þá starði Sindri bara á mömmu og sagði "en ég var bara að veifa ykkur


góð saga eeða hvaað??

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahahaha :D mér finnst þetta alveg óóógeðslega góð saga! ég skal jafnvel bara GEFA þér 500 kall, þá þarftu ekki alltaf að vera að leita af þeim ;)

guðlaug sagði...

hættu þessu
ég var að reyna að finna eitthvað að skrifa og þetta var það eina sem mér datt í hug :)

Nafnlaus sagði...

hahaha :) okeyyyy ;)

Nafnlaus sagði...

Shit hvað ég hló MIKIÐ....Og ég sé þetts svo MIKIÐ fyrir mér gerast, mamma þín í stress kasti að keyra á eftir Sindra, komast svo að því að þetta var ekki hann, verða svo rauð eins og tómatur og heyri jafnvel Sindra segja, "Jáh, en ég var bara að veifa ykkur"

Nafnlaus sagði...

Lollol. Bara fyndið. En hérna við verðum að hittast á morgun. Er farin að sakna þín geðveikt mikið.